Kristján Gunnar Valdimarsson er hæstaréttarlögmaður og sérfræðingur í innlendum og alþjóðlegum skattarétti. Hann hefur starfað við skattarétt frá því að hann lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1990 og þekkir skattamál frá öllum hliðum: sem skattstjóri í Vestfjarðaumdæmi og skrifstofustjóri eftirlitsskrifstofu skattstjórans í Reykjavík, sem lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis, sem forstöðumaður skattamála hjá Búnaðarbanka Íslands og Landsbanka Íslands og sem sjálfstætt starfandi lögmaður frá 2008.
Frá 1996 til 2026 kenndi Kristján skattarétt við lagadeild Háskóla Íslands, síðast sem lektor, bæði íslenskan og alþjóðlegan skattarétt. Hann rekur lögmannsstofuna Lögmenn Promptus slf. Auk skattamála sinnir Kristján einnig almennum verjendastörfum í sakamálum.
2026
Leyfi til málflutnings fyrir Hæstarétti
2023
Leyfi til málflutnings fyrir Landsrétti
2002
Próf í verðbréfaviðskiptum
1994
Leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi
1990
Embættispróf í lögfræði, Háskóli Íslands
2008–
Sjálfstætt starfandi lögmaður, Lögmenn Promptus slf.
2007–2026
Lektor í skattarétti, lagadeild Háskóla Íslands
2003–2008
Forstöðumaður skattasviðs, Landsbanki Íslands hf.
2003–2007
Aðjúnkt í skattarétti, lagadeild Háskóla Íslands
2000–2003
Forstöðumaður skattaráðgjafar, Búnaðarbanki Íslands hf.
1996–2003
Stundakennari í skattarétti og fjármuna- og félagarétti, Háskóli Íslands
1998–1999
Lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis
1993–2000
Skrifstofustjóri eftirlitsskrifstofu skattstjórans í Reykjavík
1991–1993
Skattstjóri í Vestfjarðaumdæmi
1990–1991
Lögfræðingur í fjármálaráðuneytinu
Fyrirlesari og leiðbeinandi á námskeiðum, m.a. hjá ríkisskattstjóra, Endurmenntun Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, Lögmannafélagi Íslands, Lögfræðingafélagi Íslands og Félagi löggiltra endurskoðenda.
Í stjórn Lögfræðingafélags Íslands frá 1994 og formaður 2002–2005. Formaður Skattstjórafélags Íslands 1992–1993. Formaður útgáfunefndar Handbókar um innheimtu opinberra gjalda.
Um hugtakið raunverulegan eiganda í alþjóðlegum skattrétti. Úlfljótur, 3 tbl. 2016.
Skattasniðganga. Tímarit lögfræðinga, 3. hefti 1999.
Um málsmeðferðarreglur á skattstjórastigi. Úlfljótur, 4. tbl. 1993.
Skattframkvæmd frá sjónarhóli framkvæmdavaldsins. Viðskiptablaðið, 1998.
Nýjar málsmeðferðarreglur skattalaga. Tíund, apríl 1997.
Tímafrestir endurákvörðunar. Tíund, október 1997.