Ráðgjöf og málflutningur í innlendum og alþjóðlegum skattarétti fyrir einstaklinga og fyrirtæki – á öllum stigum máls, frá fyrstu fyrirspurn skattyfirvalda til meðferðar fyrir dómstólum.
Kristján Gunnar Valdimarsson, hæstaréttarlögmaður
Að hafa rétt fyrir sér og að fá rétt sinn viðurkenndan er sitt hvað. Vönduð gagnaöflun og skýr málatilbúnaður frá upphafi skipta sköpum.
Andmæli við endurákvörðun, kærur til yfirskattanefndar og rekstur mála fyrir héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti.
Hagsmunagæsla frá fyrstu stigum rannsóknar, við skýrslutökur og í samskiptum við rannsóknaraðila og ákæruvald.
Skattaleg ráðgjöf við rekstur, endurskipulagningu, samruna og kaup og sölu félaga – áður en ákvarðanir eru teknar.
Ráðgjöf við skipti dánarbúa, fyrirframgreiddan arf og kynslóðaskipti í fjölskyldufyrirtækjum.
Tvísköttunarsamningar, skattaleg heimilisfesti og skattlagning tekna og eigna milli landa.
Almenn verjendastörf í sakamálum, frá skýrslutöku hjá lögreglu til meðferðar máls fyrir dómstólum.
Fyrirspurnir, boðun og endurákvörðun. Hér er lagður grunnur að öllu framhaldi málsins.
Kæra og málatilbúnaður fyrir sjálfstæðri úrskurðarnefnd.
Málflutningur fyrir héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti.
Hringið eða sendið tölvupóst með stuttri lýsingu á málinu. Fyrirspurnir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Vinsamlegast sendið ekki viðkvæm gögn fyrr en haft hefur verið samband.